Einstæðingsskapur

Nú er líklega komið 1 1/2 ár af einstæðingsskap hjá mér og hefur það satt best að segja ekki alltaf verið tekið út með sældinni einni saman.
Nú er þó svo komið mér finnst ég vera orðinn virkilega góður í að hugsa um sjálfan mig og hef sífellt meira gaman af (sjálfum mér?) Þessum einstæðingsskap.
Um leið vakna spurningar eins og: Verður aftur snúið? Á ég eftir að dvelja of lengi í þessari paradís? Enda ég sem gamall, bitur einstæðingur?
Meðan að enski boltinn rúllar og bjórinn er seldur af krana þá held ég bara að þetta verði allt í lagi.

5 Comments:
Tja, þú ert nú meiri kaddlinn hm...
Tja, ég veit ekki hvað ég get sagt við þessu!? En til hamingju með nýju klippinguna, hún fer þér bara helvíti vel.
Það er nú reyndar ágætt að hafa einhvern til að færa sér bjórinn.
En afhverju þarf maður endilega að vera bitur þó einn sé? Er ekki hægt að vera einn og hamingjusamur?
hvað áttu við þegar þú segir að þú þú hafir sífellt meira gaman af sjálfum þér?
N.
Skrifa ummæli
<< Home