9/11

Horfði í gær á alveg magnað mynd þar sem hópur vænisjúkra NY búa kom saman til að krefjast opnunar á rannsókn á atburðum þeim sem leiddu til hörmunaganna 11 sept. Þarna eru talin til ýmis góð rök (og þau svo endurtekinn aftur og aftur eins og siður er í svona myndum) og spurt spurninga sem manni finnst að vel megi reyna að svara. Ekki síst þegar litið er til þeirra manna sem sitja í hvítahúsinu, þeirra fyrri verk og ekki síst síðari.
Til að grafa svo undan þessu öllu saman var svo farið að benda á einhver undarleg ljósfyrirbæri rétt áður en flugvélarnar smella inn í turnana og á dularfulla skugga sem ekki er nokkru leið að henda reiður á þar sem búið er að magna myndirnar svo rosalega.
Ég er sannfærður um að Bush og hans menn eru með óhreint mjöl í pokahorninu sínu, en ég trúi ekki að leyniþjónustan hafi verið sveitt við að troða spreniefin í turnana og í vélarnar sem flugu inn í þá.

1 Comments:
Skrítið að geta ekki sleppt þessum yfirnátturulega þætti (og þar af leiðiandi gera allt sem undan kemur ótrúverðugt).
Skrifa ummæli
<< Home