Supertramp
Þessi hljómplata skók tilveru mína fyrir mörgum árum síðan, en á henni spilar hin stórgóða hljómsveit Supertramp á tónleikum í París. Þar sem á milli laga var töluð franska af miklum móð gaf ég mér, án þess að hugsa mikið um það, að hljómsveitin væri frönsk. Ég leiddi því aldrei hugan að því að nafn sveitarinnar gæti þýtt eitthvað sem hægt væri að skilja. Ensku kunnátta mín á þessum tíma var kannski ekki upp á marga fiska heldur og því söng ég, eins og Daði bróðir, með hljómsveitinni af meiri vilja en skilning.Fyrir stuttu síðan rakst ég svo á þessa forlátu plötu í safni mínu og átta mig strax á því að þarna er ofurdræsa á ferðinni en ekki neitt franskt eitt eða annað. En þarna endaði líka uppgötvanna ferlið mitt. Þar sem ég ek um götur bæjarins með ofurdræsuna í bíltækinu mín, syngjandi með eins og barkinn þolir, átta ég mig á, mér til mikillar skelfingar/ánægju að ég hef ekki hugmynd um hvað textar þeirra fjalla um. Ég er sem sagt að syngja bara eitthvað sem er ekki einu sinni enska!
Ég hef núna fundið heimasíðu þar sem hægt er að fá alla textana þeirra en ég held ég sleppi að lesa þá. Ég er pínu hræddur um að þeir séu kannski bara bölvað bull.

6 Comments:
he he, skemmtileg tilviljun, var einmitt að downloada lögunum þeirra fyrir tveim þrem vikum síðan :)
Það er oft sniðugt að heyra þessi lög frá því maður var eitthvað yngri. Sum að sjálfsögðu standast tímans tönn betur en önnur.
Gaman að þessu. Supertramp hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér og 'Crime of the Century' er hiklaust ofarlega á topp 50 listanum.
PS. Nafn sveitarinnar er dregið af bók sem heitir 'Autobiography of a Super-tramp' og er eftir "... an English gentleman whose name illudes me for the moment".
Takk fyrir þetta Hörður. Er bókin læsileg?
Er þetta ekki bara bull um súru og sætu kökurnar!!??
Nei hér er engu logið en kannski aðeins fært í stílinn :)
Skrifa ummæli
<< Home