25 janúar 2006

Nýtt upphaf


Seinustu tvo vetur hefur tímatalið tekið breytingum hjá mér. Það er; ný vika hefst á þriðjudegi, því að á mánudagskvöldum er leikinn fótbolti og önnur eins núllstilling á andlegri líðan er vandfundin. Fótbolti er eins og flestir vita drottning íþróttanna, því auk þess að hafa mikið skemmtanagildi þá krefjast hún líkamlegs styrks og afburðar greindar. Ekki ósvipað og góð eiginkona. Á meðfylgjandi mynd gefur að líta hluta af því vörpulega stóði sem saman kemur hvern mánudag til að hlaupa af sér amstur hversdagsins. Lesendum mínum og máli mínu til stuðnings vil ég sérstaklega benda á einlægt longómíta bros þessara kappa þrátt fyrir tapaðan leik. Er hægt að hugsa sér eitthvað betra?

7 Comments:

At 8:54 e.h., Blogger BbulgroZ said...

Já þetta er hverju orði sannara og þessi mynd er góð auglýsing fyrir íþróttina...

 
At 12:50 f.h., Blogger Fjalar said...

Ég ætlaði einmitt að fara að spyrja hvers vegna ekki væri birt mynd af sigurliðinu? Þetta eru algera hlussur þarna á mynd. (að undanskildum Árna sem var í sigurliðinu)

 
At 9:22 f.h., Blogger Refsarinn said...

Ef ég man rétt þá voru siguliðar of þreyttir til að mæta í myndatöku eftir að hafa með naumindum knúið fram sigur á loka mínútum leiksins.

 
At 10:48 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Þetta hljómar næstum spennandi. Kannski ég hætti í einum kór eða svo og taki upp sparkið í staðinn...
Ég fékk nú alltaf þann heiðurssess í gamla daga að vera í markinu, er staðan opin?

Nei ég segi bara svona hí hí hí

 
At 11:36 f.h., Blogger BbulgroZ said...

Passaðu þig nú á þessum íþróttum systir góð. Þú veist að íþróttir eru stór stór varasamar, þú endar bara í fríi í þrjár-sex vikur og bloggar yfir þig...ég ræð engum að stunda íþróttir og sérstaklega ekki með þessum hlussum þarna á mindinn : )

 
At 12:35 e.h., Blogger Refsarinn said...

Nú verð ég að biðja menn gæti hófsemi í yfirlýsingum um menn og málefni hér í kommentunum sínum. Þetta eru fallegir piltar þarna á myndinni og það er mér mikill heiður að leika í þeirra röðum.

 
At 12:53 e.h., Blogger BbulgroZ said...

Já ég var bara að vitna í Fjalar, hann kallaði þessa menn hlussur, ég myndi aldrei gera slíkt

 

Skrifa ummæli

<< Home