Refsarinn; skrásett vörumerki

Ég vil byrja á að þakka ykkur, mínu dyggu lesendur, fyrir gagnlegar ábendingar og fyrir þann mikla stuðning sem þið hafið veitt mér á vegferð minni í leit að sjálfi mínu.
Sjálfsagt kemur sá tími í lífi hvers mans að hann þarf að spyrja sig; hver er ég, hvað stend ég fyrir og síðast en ekki síst er ég sáttur við það?
Jæja sá tími kom hjá mér og ég hef nýtt hann til nákvæmrar greiningar og komist að niðurstöðu.
Refsarinn verður ekki umflúinn. Refsarinn er ég og ég er Refsarinn. Refsarinn er örlög mín og við elskum hvorn annan og munum eiga samleið út yfir gröf og dauða.
Hver sá sem ekki er sáttur við þetta samneyti bloggi núna, annars að eilífu haldi sínum skoðunum fyrir sig.

3 Comments:
Lauk rétt, þarna er REFSARINN!!
Ef þú vilt auka virðuleikann þá getur þú auðvitað breytt rithættinum og verið Ref Czarinn, því sá Czar sem er Ref Czar er flottari en allir hinir Czarirnir.
Tóld jú só?
Skrifa ummæli
<< Home