18 janúar 2006

Íþróttameiðsl

Það ætlar seint að takast hjá mér að fara í gegnum einn vetur í íþróttum án þess að slasa mig. Í þetta sinnið tókst mér að lemja litla þumlinum mínum utan í rimlana í salnum þar sem við leikum fótbolta. Þetta eru ekki nein alvöru fótboltameiðsl eins og þessi hér, en puttalinguinn er a.m.k. tvöfaldur og mikill hjartsláttur. Fékk vægast sagt spennandi viðbrögð frá pabba þegar hann sá herlegheitin. Hrópaði upp yfir sig sem andsetinn væri "hvenær ætlið þið að hætta þessum fótbolta?".
Hann verður líklega ekki ánægður fyrr en við eru orðnir obese og með verulega gyllinæð.
Ég bíð núna spenntur eftir sunnudeginum þegar okkar menn fara á gamla trafford og leggja að velli gamla stórveldið.

Lífið hefur á þessum vetrarmánuðum snúist að mestu um þvottavélina og fótbolta. Ekkert sérstaklega slæmt þannig lagað en mikið var ég feginn þegar gróðurhúsaáhrifin ákváðu að yfirgefa landið okkar í vikunni.
Ekki vegna þess að ég væri orðinn svona leiður á umhverfistuðinu í Vinstri grænum, heldur hef ég fengið kærkomið tækifæri til að jeppast eins og vindurinn um götur bæjarins á nýja/gamla bílnum mínum.

Langar að lokum að sýna mínum dyggu lesendum fallegu grýlukertin mín og þá sérstaklega honum Daða litlabróðu. Það gertur vel verið að þú fáir bjór fyrir lítinn pening þarna þar sem þú ert en ég er hræddur um að þú fáir ekki mikið af þessu he he he...

3 Comments:

At 9:15 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Úff úff úff þetta er ekki fallegt að sjá. En svona er fótboltinn stór hættulegur!

 
At 10:44 f.h., Blogger BbulgroZ said...

Já já hættu nú þessu væli, þú færð ekkert athygli út á þetta...þú verður að fótbrjóta þig eða slíta eitthvað til að fá einhverja samúð : ) elsku kallinn.

 
At 7:38 e.h., Blogger Smútn said...

Getið þið bræður ekki fengið útrás fyrir að sína ykkar vansköpuðu limi á einhverri lokaðri síðu?

Þetta er bara ekki fallegt!

 

Skrifa ummæli

<< Home