MS ritstífla
Jæja. Sit hérna sveittur við það eitt að reyna að koma einhverju á blað um uppruna, eðli og orsakir brjóstakrabbameins, en gengur frekar hægt. Ekki svo að skilja að ekki sé af nóg að taka þegar kemur að upplýsingum sem setja má í MS ritgerðina mína, öðru nær.
Orsök skrifstíflu minnar held ég að megi rekja til þessa mans hér, sem í sífellu vænir mig um að vera letibloggara og að ég þurfi að blogga meira!?
Við þig seigi ég: Þú ert sjálfkjörinn sem skakklappi en best færi samt á því að þú lékir þér í Lárusi.
Veit reyndar ekki hvaða leikur þessi "Lárus" er, held að ég hafi verið að reykja meðan hann var leikinn en allar upplýsingar eru vel þegnar.

4 Comments:
Megi stíflan losna hjá þér kæri bróðir og orðin flæða í stríðum staumum (á pappírinn altsvo)
Já ég útskýrði fyrir þér Lárusinn í gegnum síma áðan og vona ég að allir aðrir séu með það á hreinu hvað Lárus er
Nú hef ég sett útskýringu á síðu mína fyrir þá sem eru ekki með á nótunum hvað Lárus felur í sér, hvet alla til að kíkja þangað absalut.blogspot.com
Lengi lifi Lárusinn!
Skrifa ummæli
<< Home