14 nóvember 2006

Slakt gengi á útivelli


Refsaranum hefur líkt og öðrum sviðið slakt gengi sinna manna á útivelli.
Eftir að hafa tapað snautlega á sunnudag og nær svefnlausar nætur í kjölfarið var ákveðið á töflufundi að fara betur yfir stöðuna.

Útileikir

Sheffield U Jafntefli
Everton Hrikalegt 3-0 tap
Chelsea Tapað 1-0 helv. Drogba óverjandi sjóðheitur.
Bolton Hrikalegt 2-0 tap ættum að skammast okkar
Man U Tap 2-0
Arsenal Tap 3-0 Arsenal með hörku lið í miklu stuði þennan dag, 3-0 var slæmt en HEY!

Ég lýsi því hér með yfir að þessi sería af útileikjum hljóti að leika öll lið nokkuð grátt og nú þarf að safna saman sjálfstrausti. Man U fékk útileikja röð á móti tómu drasli í upphafi leiktíðar og nýtti það til að berja sjálfstrausti í sína menn sem svo nýttist þegar blés á móti . Sjáum til hvort þeir endist leiktíðina.

4 Comments:

At 2:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ooo ég vildi að ég væri inni í þessum fótbolta áhuga, þetta hljómar svo spennandi :)
Ég fylgdist vel með flestum leikjum HM og kíkti reglulega á bloggin hjá þeim sem höfðu handa mér fróðleiksmola í þeim efnum. Hún systir þín gæti nú sagt þér að það er nú ekkert slor þegar ég fæ áhuga á einhverju...er svoddan dellukella, tíhí :)

 
At 2:53 e.h., Blogger Refsarinn said...

Gaman að heyra frá þér mín kæra og það er auðveldlega hægt að fá dellu fyrir leiðinlegri hlutum en fótbolta.

 
At 9:44 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jæja já, þetta er gott að heyra, ég var farinn að hallast að því að við næðum jafnvel ekki 4ða sætinu, en eftir þennann pistil er ég sanfærður um að það náist.

 
At 11:35 f.h., Blogger Valþór said...

leiðinlegt að segja þér það en arsenal voru ekki í miklu stuði þennan dag. svona með slakari leikjum sem ég hef séð með þeim, en færin nýttu þeir.

 

Skrifa ummæli

<< Home