02 desember 2006

Lennon tónlekar


Fór í boði Nimblegen á Lennon í gær.
Þar sem ég er enginn sérstakur Lennon aðdáandi þá hafði ég fyrirfram ættlað að þarna gæti ég fengið að njóta topp framsetningar á meistaraverkum kallsins milli þess sem ég gæti þurft að hlusta á eitthvað trúarbragðaraus um manninnLennon.

Í suttu máli þá var hllómsveitin frábær, og ekkert hægt að setja út á framistöðu hennar.

KK, Eivör Páll Rósinkrans og Haukur Heiðar Hauksson voru líka mjög góð og ekki laust við að Pallli setti í gang hressilega gæsahúð með þessari ótrúlegu rödd. Forskot þessara söngvara fólst samt aðalega í því að þeir kunnu textana sína og voru ekki að syngja af blaði!

Aðrir söngvarar voru bara í kariókí, og á köflum var framsetningin líkt og halelúja mómentið hjá mr. Bean. Þar sem texti lagsins er sunginn lágt og varfærnislega þar til komið er inn í viðlagið, þá eflist sjálfstraustið og hægt er að beita sér svolítið í söngnum.

Mikið var klappað í lok tónleikanna og tók ég þátt í því af skyldurækni.

Mér var svolítið umhugsað um þetta mikla klapp seinna um kvölldið og komst að þeirri niðurstöðu að þarna hafi annað hvort verið saman komnir bókstafstrúaðir Lennon hippar, eða hitt að ekki hafi verið sála í salnum sem borgaði sig inn. Því ef ég hefið gefið 6500kr fyrir þessa tónleka úr eigin vasa þá hefði ég verið brjálaður og farið fram á endurgreiðslu.

1 Comments:

At 7:11 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Tja ég les hauskúpu út úr þessu ef um stjörnugjöf væri að ræða hjá Refsaranum.
Aðeins KK, Rósinkrans og Eivör hafi staðið sig vel...tja hvað segja aðrir menn sem voru þarna, væri gaman aðheyra.

 

Skrifa ummæli

<< Home