23 nóvember 2006

Frjáls vilji


Að fúsum og frjálsum vilja fer ég að sjá krýningu hr. íslands í kvöld. Á dauða mínum átti ég von en ekki þessu. Ef einhver hebbði spurt mig fyrir 1/2 ári síðan hefði ég jú bara hlegið dátt.

Annars er frjáls vilji mér nokkuð hugleikinn þessa dagana.

Á seinasta ári keypti ég mér tvær peysur sem er als ekki í frásögur færandi nema að þegar ég var að fletta í gegnum 18ára gömul myndaalbúm, sá ég sjálfan mig á nokkrum myndum í báðum þessum peysum, alveg eins! (Aðeins hef ég jú þykknað en maður lifandi aldreigi litið eins vel út og í dag).

Þegar ég fer í sund fer ég alltaf í sama skápinn, þó svo allir aðrir skápar séu eins og lausir. Ef skápurinn minn er upptekinn þá tek ég næsta við hliðina á eða þar við hliðina á. Svona er maður frjáls.

5 Comments:

At 8:29 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er magnaður andskoti hvað maður er ótrúlega vanafastur.

Ha ha ha, fyndið þetta með peysurnar. Er ekki alltaf sagt að tískan fari í hringi?

 
At 11:25 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Einhverfur andskoti.

 
At 12:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

það hefur nú eitthvað verið bogið við framkvæmdina á þessari keppni
N.

 
At 1:30 e.h., Blogger Refsarinn said...

Sigurvegaranum verður best lýst sem Girlyman, enda grét hann eins og búðingurinn sem hann er.

 
At 5:55 e.h., Blogger Þorkatla said...

hryllilega fyndið með peysurnar, ég er enn að hlæja.

 

Skrifa ummæli

<< Home