Ferill minn tekur breytingum

Ég held að ég hafi fundið mitt óskastarf sem fílasæðingamaður. Líkt og myndin ber með sér er þetta líklega þægileg útivinna, umhverfið róandi og svo skilst mér að launin séu ágæt. Veit þó ekki alveg hvort ég hafi reiknað indversku krónuna rétt.
Spurning hvort að starfinu fylgi einhver hlunnindi? Læt þetta nægja í bili, þarf að skutlast í handsnyrtingu.

1 Comments:
Hvaða leti er þetta eiginlega, hér gerist aldrei neitt!" ! ! ! ! ! ! ! ! !
Skrifa ummæli
<< Home