Nefhár
Oft lendi ég í því að fólk kemur til mín og segir eitthvað á þessa leið: "þú ert með fallegan skeggvöxt Þórhallur, en hvað með önnur líkamshár?". Þetta er góð spurning og vert að svara en leiðigjarnt svona oft. Því vil ég nota þennan miðil til að reyna að svara í eitt skipti fyrir öll. Svarið er einfaldlega "nei, mér vaxa nánast eingin önnur líkamshár nema nefhár". Þennan vanda skilur Arnar bróðir minn vel og brást við þessi jól með því að færa mér að gjöf forlátar nef- og eyrnaháraklippur, rafknúnar. Þetta er sannkölluð draumavél sem fumlaust gerir út um þennan leiða aukavöxt karlmennsku minnar og mæli ég því hér hiklaust með þessu tæki við þá sem á þurfa að halda. Hér er þó mikilvægt að koma fram að ég brúka þessa vél einvörðungu til snyrtingar á nefhárum því eyrnahár hef ég eingin. Til að snyrta þann vöxt tel ég að best sé að nota haglabyssu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home