07 nóvember 2009

Bíllauslífsstíll




Alveg hefur þessi tilraun með bíllausalífstílinn gegnið bærilega. Ég hef þó seinustu vikuna þurft að hvíla hjólið og nota almenningsvagnakerfið og það fer í taugarnar á mér.

Eftir að þeir breyttu leiðinni minni til vinnunnar þannig að ég fæ útsýnisleiðangur um Úlvarsfellið á hverjum morgni jókst pirringur minn til muna.

Í þessu ástandi lætur maður allt fara í taugarnar á sér. Heimasíða strætó fer td í taugarnar á mér núna.



Myndirnar tala sínu máli.

3 Comments:

At 8:31 e.h., Blogger abelinahulda said...

Mér finnst þú náttlega alveg ótrúlega seigur kall að hjóla þessa leið í vinnuna. En það má auðvitað nýta strætóferðina til að lesa eða eitthvað svoleiðis. Nú virðist ekkert skemmtilegt að hjóla, rok og rigning.

 
At 11:23 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Hvað bull er þetta, alltaf gaman að hjóla!
Skil vel pirringinn með strætó, það er leiðinlegt að taka strætó á hverjum einasta degi. Allt í lagi að fara eina og eina ferð með þessum stóru gulu, en ekki á hverjum degi.
En ef maður neyðist til þess þá er gott að hafa góða bók.

 
At 12:33 e.h., Blogger BbulgroZ said...

Bloggið lifir!! Ég hjóla hvern dag og þyki ótrúlega duglegur af mínum samstarfsfélögum. Ég segi, "er ekki kreppa?" En engum virðist detta það í huga að taka srtætó eða hjóla til og frá vinnu sinni!

 

Skrifa ummæli

<< Home