skopskyn

Oft er það mál manna að tímasetning sé lykillinn að góðu gríni. Ég er ekki alveg sammála þarna, en tímasetning er sannarlega mikilvæg, sérstaklega ef grínið er eitthvað tæpt.
Gott grín, sem tekur fullkomlega hversdagslegar aðstæður og snýr þeim svo gersamlega á haus að ekki nokkur maður hafði áður séð þær í slíku samhengi vekur alltaf hlátur og kátínu. Tímasetning hefur lítið með það að gera hversu fyndið slík uppsetning er.
Annað sem ber að varast er grín sem er fyrir augunum á öllum. Íþróttafréttamenn eru sérlega gjarnir á að falla í þessa gryfju (td. Reina reynir að finna Finnan). Þetta lítur út fyrir að vera fyndið í hita leiksins en það eru allir búnir að sjá grínið fyrir og ekkert nýtt er sett inn í mixið. Sama má segja um aumkunarverðar tilraunir spaugstofumanna til að gera grín að Ólafi F.
Af þeirri ástæðu ætla ég ekki að blogga um, þó það sé frétt dagsins, að Menn ársins eru með plötu vikunar á rás 2.

2 Comments:
Snilldarskrif kæri bróðir.
Varð þess valdandi að ég kveikti á rás2.
Hefi haft rás 2 á og lagt við hlustir alla vikuna, vona að þetta skili sínu.
Skrifa ummæli
<< Home