1/2 járnkall
Held að það sé kominn tími til að byrja að blogga að nýju. Reikna þó ekki með að vera neitt sérlega iðinn við kolann, en hver veit.
Fyrsta mál á dagskrá. Setja stefnuna á hálfan járnkarl næsta sumar!
Þetta eru ekki nema: 1.9 km sund, 90km hjól, og 21,1km hlaup.
Ég hljóp hálft maraþon í sumar á tímanum 1klst og 52mín.
Ég hjóla 22-24 km í og úr vinnu alla daga og ég veit að ég get haldið 30km meðalhraða á hjólinu sem ég er á núna. Kemst hraðar á betra hjóli sem ég vonast til að vera komin með í hendurnar næsta vor.
Það tekur mig í núverandi ástandi u.þ.b. klst að synda 2km, rétt tæplega þó á góðm degi.
Til samans gera þetta þá:
1 klst sund
3 klst hjól
2 klst hlaup.
6 klst í það heila.
Þetta er ekki nema rétt rúmlega vinnudagur kennara og ef þeir geta þetta þá get ég það líka.
Meira síðar.

1 Comments:
Velkominn á bloggið aftur kæri bróðir!
Markið er ekki sett lágt, en þar sem þú ert einstakt hörkutól þá efast ég ekki um að þú getir þetta.
Ég sjálf er þó enn að jafna mig eftir 60 km hjól í Bláalónsþrautinni sem tók mig 4 klst ef ég man rétt, en þessi 90 km vegalengd er kannski meira á jafnsléttu og á betri vegi?
Skrifa ummæli
<< Home