20 júní 2008

Fjölmenningarsamfélagið

Refsarinn er allur fyrir fjölmenningarsamfélagið og það vita allir sem hann þekkja.
Það er enda augljóst að samfélagið sem heild hagnast aðeins af því að læra siði og venjur frá framandi menningarsamfélögum þar sem einstaklingurinn hefur tækifæri til að velja og hafna þeim siðum og venjum sem honum þykir henta best í stað þess að sitja heimóttarlegur í sannfæringu sinni um að það sem hann ólst upp við sé absalút það besta.

En...

...þurfa þessir helvítis norðlendingar alltaf að vera að tala um mjólk, ganga í stakk og drekka úr bauk?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home