Langhlaup
Setti nýtt persónulegt met í gær þegar ég hljóp 17km með sætu kærustunni minni. Við lukum þannig vikunni með því að fara 47,5km í samanlögðu sem líka verður að teljast met.
Næsta vika verður svipuð en svo verður hvílt fyrir 1/2 maraþon.
Á miðvikudag er stefnan sett á smá hlaup og eftir það verður synt yfir Fossvoginn! Þar rætist draumur sem ég hef rætt um við nokkra af mínum nánustu félögum, en flestir þeirra hafa afgreitt það tal sem óráðs-röfl.
Vona að ég hafi styrk til að koma litla líkamanum mínum ofan í kaldan sjóinn því sundið sjálft ætti að vera nokkuð létt.

3 Comments:
Vá, þú ert að breytast í íþrótta ofurhetju.
Til hamingju með 17 km.
En að synda yfir Fossvoginn með hverjum ferðu? Hvaðan er lagt af stað?
Verður auglýst síðar ef maður myndi vilja sýna stuðning og mæta?
þú ert nútíma Herkúles drengur!!
Syind að þessi litli líkami hafi ekki ratað í íþróttirnar fyrr, heldur hélt hann til á skiptistöðinni, lifi pönkið : )
Skrifa ummæli
<< Home