15 október 2009

Að lúkka "scruffy"

Sæta kærastan mín hefur alveg sannfært mig um að smá lubbi og 2daga skegg sé málið. Þurfti svo sem ekkert að halda langa ræðu ég hef jú altaf verið frekar latur við að raka mig og fara í klippingu.

Það runnu þó á mig tvær grímur um daginn. Þar sem ég var á miðjum þriðjudegi úti í smá hressingargöngutúr. Þá kemur upp að mér bíll, fullur af unglingum. Rúðan farþegamegin er skrúfuð niður og farþeginn býður mér að taka pizzu, svona hálf kláraða Dominos með pepperoni.

Í fyrstu var ég of hissa til að gera neitt annað en að afþakka boðið bara pent.

Það var svo ekki fyrr en nokkrum mínútum seinna að ég áttaði mig á að þarna höfðu ungmennin líklega ekki séð Kris Kristofersoninn sem var á göngu sér til hressingar, heldur frekar haldið að þarna væri besti vinu Lalla Jones á ferð.

3 Comments:

At 8:35 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Ha ha ha! Já, þá er nú liklegast kominn tími á smá rakstur og klippingu.

 
At 9:11 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég sá hann þennan dag... maðurinn er bara kallaður Mr. Hotness á mínu heimili!
adda

 
At 12:34 e.h., Blogger BbulgroZ said...

Fun heitur!!

 

Skrifa ummæli

<< Home