18 júní 2008

Siðferðisklípa Refsarans

Um helgina fór Refsarinn á strandir, nánar tiltekið í Ófeigsfjörð til að hlaða líkama og sál eftir strangan vetur. Bar nú svo við að ekki var gott veður þarna fyrir vestan og það hvarlaði að Refsaranum að kannski væri ástæða fyrir því að fólk vildi frekar búa í bænum. Annars var þetta ekki alslæmt og fékk Refsarinn að reyna ýmislegt sem ekki hefði annars gefist tækifæri til hér í höfuðstaðnum. Þar má meðal annars telja þeisireið á krossara og að höggva eldivið.

Seinni sessjonin setti þó Refsarann í nokkurn vanda. Eftir að hafa klofið nokkra drumba eins og eldspítur varð einhverjum á orði "þú er bara eins og Ingalls". Hló Refsarinn dátt af og hélt iðju sinni ótrauður áfram þar til húsfylli af timbri var komið.

Þegar tók að kvölda varð Refsarinn við að "ingalls" djókið var ekki að stoppa og frekar að ágerast ef eitthvað. En eins og allir vita er Refsarinn meira Hasselhoff en nokkurn tíman Ingalls.

Eftir að hafa ítrekað reynt að leiðrétta þennan leiða misskilning komst Refsarinn að þeirri niðurstöðu að Charles Ingalls hefði ekki getað orðið annað en Baðvörður í henni Kaliforníu ef hann hefði verið uppi í dag enda góður, greindur og réttlátur eins of strandvörðurinn eini.

5 Comments:

At 8:31 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Ég hef nú bara aldrei vitað annað eins. Vita menn ekki að þú snertir ekki á fiðlu og mundir alrei gera!

 
At 8:31 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

 
At 11:39 f.h., Blogger Refsarinn said...

Skarplega ath systir góð en... allir sem eitthvað vita vita að Hasselhoff syngur eins og engill.

 
At 8:00 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Já og það gerir þú líka

 
At 10:07 e.h., Blogger BbulgroZ said...

Sé Refsarann fyrir mér, með öxina, höggvandi viðinn, kannkvís brosir hann að kveldi með börnum sínum, nýbúinn að leggja frá sér fiðluna.

 

Skrifa ummæli

<< Home