Frá landi hinna frjálsu...
...berast nú þær fréttir að hert steikingarfita sé bönnuð á skyndibitastönum NY borgar. Þessi aðgerð, sem lítur út fyrir að hafa hoppað út úr blautum draum einhver sænsk stjónmálamans, er fyndin fyrir þær sakir að sannfærandi rök hafa nýlega verið færð fyrir því að fitugerð hafi ekkert með hjartaveilur að gera. Henda má út kóleseróli sem orsakavaldi hjartaáfalla.
Vandamálið við að koma þessum upplýsingum á framfæri er að sambandið milli fitu og hjartagalla er orðin að almennri þekkingu/trúarbrögðum, ekki ósvipað gróurhúsaáhrifunum og vei þeim villutrúarmanni sem heldur öðru fram.

2 Comments:
En hvað það er nú hressandi að heyra í manni sem er ekki tilbúinn að hlaupa æpandi um torg eins og móðursjúk unglingsstúlka vegna heimsendaspádóma. Umræðan um loftslagsbreytingar minnir mig stundum á partíin sem Svabbi lillebror hélt í den sem enduðu gjarnan á því að vinkonur hans lokuðu sig í hysteríukasti inni á baðherbergi og hótuðu sjálfsvígum.
Það var lýsandi að lesa grein eftir einhvern vinstri græningjann fyrir nokkrum vikum þar sem helstu rök hans fyrir því að hitastig á jörðinni væri að hækka var að hann mundi eftir miklum snjóum í Reykjavík í barnæsku en ekki í seinni tíð og spurði drjúgur hvort nokkur myndi eftir því að snjóað hafi af einhverju viti í borginni undanfarin 5-6 ár. Mannhálfvitinn horfir á það örstutta augnablik sem 5-6 ár eru í jarðsögunni, einblínir á einn blett á jarðarkringluni og treystir þar að auki á eigið minni til að færa sín rök fyrir hlýnun jarðar!!! Dásemd!
PS. Því miður fyrir manninn birtist greinin núna um daginn þegar góða skotið kom þegar skyndilega var allt á kafi í snjó í bænum og bílar sátu fastir út um allt.
He he frábært...ótrúlegt en satt.
Skrifa ummæli
<< Home