04 desember 2006

Blogg Refsarans byltir enn og aftur

Ég á sífellt efiðara með að ímynda mér að Árni Matt, fjármálaráðherra hafi einhverntíman verið titlaður sem einn af strákunum okkar (ef einhver veit betur þá endilega segið frá). Fáa menn hef ég séð eldast og verða að hreinræktaðri þurrkuntu jafn hratt og hann.

Í stærðfræðinni er talað um "lim" ákveðins ferils eða jöfnu og er þar átt við að ferillinn stefni á ákveðið gildi þó svo að hann komi aldreigi til með að ná því.

Limið hans Árna virðis mér vera þessi kall.

Mér virðist þó að hafi Árni lesið bloggið mitt frá því fyrir helgi og ákveðið snarlega að hætta við hækkun á áfengisgjaldinu, en þar sem hann er eymingi þá ætlar hann ekki að lækka VSK á dropanum heldur.

Þetta lagast kannske eftir byltinguna?

5 Comments:

At 9:34 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta eru ótrúleg áhrif sem þú hefur!

Geturður ekki rætt líka um breytinguna á viðmiðum lögreglu vegna hraðaksturs? Þar er nú enn ein vitleysan sem þessir kjánar á þingi hafa gert.

 
At 10:01 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Magnaður bloggari hér á ferð...greinilega margir sem detta inn á síðu þína...

 
At 11:33 f.h., Blogger Refsarinn said...

Jú það eru mörg þjóðþrifamálin sem taka þarf upp á þessari síðu og mun ég reyna að ganga í þau eftir því sem tími vinnst til.

 
At 7:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Árni Mathiesen var aldrei einn af "strákunum okkar". Þú ert að rugla honum saman við Þorgils Óttar bróður hans.

 
At 8:07 e.h., Blogger Refsarinn said...

OK takk fyrir það mér er mikið létt.

 

Skrifa ummæli

<< Home