Líknarmorð

Tók þátt í þeim annars skemmtilega leik "Sing Star" um daginn. Þar sem um keppni var að ræða fengu söngvarar ekki að velja lag sjálfir heldur voru lög valiln með slembi úrtaki. Ég var svo lánsamur að fá lagið" Greatest love of all" með dífunni Whitney Huston.
Þetta lag söng ég eins og engill og komst áfram til að syngja mig inn í úrslitin.
Eftirköstin af þessum annars hrekklausa leik voru þó allt annað en falleg og næstu vikuna á eftir var ég með þetta lag algerlega á heilanum.
Mín spurning er þessi hefði ekki verið mannúðlegast að fá einhvern til að framkvæma á mér líknarmorð ef ástandið hefði ekki jafnað sig næstu vikuna?
3 Comments:
Sem vitni að þessum magnaða og fallega söng þínum þá segi og skrifa að þú hefur fengið alla tónlistarhæfileikana í þinni fjölskyldu. Þótt fólk hafi reynt að ljúga öðru að mér. Spurning með að hafa samband við Einar Bárðason og þið Garðar Cortes verðið seldir í pakka saman. Bara hugmynd.
Mér er hinsvegar spurn hvernig þeim reiddi af er tóku þátt í þessu leik með þér og voru á staðnum og hlustuðu á þessi ósköp og jú annað, fór þessi leikur fram á sambýlinu Klettahrauni?
Greini vott af öfundsýki og biturleika í skrifum bbulgroz.
Skrifa ummæli
<< Home