12 febrúar 2007

Úr mínus í plús með samkynhneigð

Var að horfa á kastljósið þar sem Alan nokkur Chamber sagði frá reynslu sinni. Alan þessi sneri frá kynvillu síns vegar með hjálp óbilandi trúar á það samkynhneigð væri sind og vill nú boða íslendingum fagnaðar erindi sitt. Það hljómar einhvern veginn svona: Kynhneigð er val og þú þarft ekki að vera samkynhneigður frekar enn þú villt.

Gott og blessað en þetta fékk mig til að hugsa. Ef hægt er að velja að vera ekki samkynhneigður hlýtur að vera hægt að velja að vera það líka.

Afhverju ætti ég að vera að leita mér að lífsförunauti sem að öllum líkindum er á lúsarlaunum og með stóran yfirdrátt þegar ég get með einföldum hugaræfingum, segjum kvölds og morgna, vanið mig til samkynhneigðar og farið að velja mér félaga sem hefur almennileg laun.

Tveir karlar í sambúð hljóta jú að þéna nokkuð meira en karl og kona því einginn virðis sjá hag sinn í að borga þeim (konunum) laun svo nokkru nemi.

Ef einhver þarna úti er með góð ráð til hand þeim sem vill snúast þá eru þau vel þegin.

5 Comments:

At 8:46 f.h., Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

hmmm... aðeins önnur sýn á lífið en maður er vanur.

En gott innlegg í launabaráttu kvenna og því segi ég: Hækkum laun kvenna ef kynstofninn á að lifi af!

 
At 11:49 f.h., Blogger BbulgroZ said...

Magnaður þessi gaur þarna í Kastljósinu, sá brot af þessu...

 
At 10:08 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Fræðiheitið á þessu ku vera "áhommun".

 
At 11:08 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég er til í að slá til,

 
At 5:49 e.h., Blogger Þorkatla said...

Hommar hafa það sem sagt best (er það þess vegna sem körlum er svona illa við homma?) og lessur hafa það verst og þess vegna finnst körlum svo æðisleg hugsunin um lessur?

 

Skrifa ummæli

<< Home