Latraviata á Varmárbökkum
Kastljós í kvöld færði okkur fréttir af uppsetningu óperu fyrir norðan með samvinnu heimamanna og simfóníu norðurlands. Þarna ættlar ung og hugguleg kona frá Ukrainu að syngja hlutverk aðalpæjunnar.
Þetta altsaman stynkar svo af mansali og kúgun að það hálfa væri nóg. Nafni minn Gunnarsson og aðstoðarkona reyndu þarna að draga fram og styrkja hugmyndir okkar um hamingjusömu óperusöngkonuna, ung og falleg tilbúinn til að syngja fyrir hvern sem er. Það sjá það allir sem það vilja sjá að ENGINN gerir svona af fúsum og frjálsum vilja. Hver haldið þið að VILJI syngja óperu!?
Þessi kona sem eitt sinn var lítil telpa og lék sér á engjum hefur nú verið seld mansali til Íslands til að þókna annarlegum kvötum sveitalubba sem vilja láta líta út fyrir að þeir geta alveg gert eins og fólkið í henni Reykjavík.
Jæja reyniði það þá ánþess að meiða aðra!

6 Comments:
Það sem þér dettur í hug.
Haf þökk fyrir að vekja athygli á þessu átakanlega vandamáli. Bróðir þinn er nýsloppinn úr þrælkunarbúðum óperumansalsmafíunnar og þá snúa þeir sér bara til Austur-Evrópu. Skammarlegt!
He he Þórhalli minn, þú ert gott dæmi um hugvit mannskeppnunnar..
En ég heyrði þessi ósköp í Kastljósinu og ég var ekki viss, fyrr en ég leit á skjáinn að hér væri leikhópurinn Perlan frá Sólheimum og víðar að setja upp óperu, því þarna var bara viljin til að syngja, ákaflega lítið annað...þetta fólk sem söng þarna af hjartans list, réði ekki við það sem Verdí skrifaði á sínum tíma, hér talar sérfræðingur, ekki af góðu, nýsloppinn frá mannsalsóperumafíunni!!
Mitt eigið blogg hefur hafnað mér og ég kemst ekki inn til að gera nokkurn skapaðan hlut. Hef því ákveðiði að flytja mig í moggabloggið http://prothallus.blog.is/blog/prothallus/
og lofa ég því að þar verða ekki skrifaðar neinar hel. neðanmálsgreinar.
Þessi færsla er snilld. Hrein og tær snilld og ég skil ekki að ég hafi ekki séð hana áður.
F.
heir heir!
Skrifa ummæli
<< Home