Vorþeyr biskups
Síra Karl þjóðkirkjubiskup hélt í dag innblásna ræðu yfir okkur sauðunum þar sem hann reynir að leiða okkur með visku sinni til betra lífs sem væri meira í anda við það sem Jesúm hefði viljað. Eitt af því sem hann sagði var að við yrðum að draga úr græðgi okkar og þannig hætta að ganga á náttúruauðlindir okkar sem væru takmarkaðar. Einnig varaði hann við vaxandi trúleysi meðal landans sem væri eins og napur vindur af hafís.
Mannfýlan fær borgað það sem eftir er af hans lífi u.þ.b. 700þús. mánaðarlega af mínum skattpeningum! Á meðan verðum við hin að ganga á náttúruauðlindir til að ná endum saman.
Ég fæ hroll af þessum vorþey síra Karls og ætla að halda áfram að lifa á mínum hafís trúleysinnar.

3 Comments:
Guðsblessun er nú að rödd þín færa að heyrast minn kæri herra Refsari, þetta er vel mælt og er ég innilega sammála þér. Megi Síran láta af græðgi sinni og gefa af sínum digura sjóði frekar enn að ausa úr þessum "visku"brunni sínum tóma þvælu.
Þó þetta kjaftæði lýsi auðvitað vænisýki og complexum yfir því hvað höfundurinn er lítið tannhjól í gangverki hugmyndamarkaðarins, finnst mér þetta bara nokkuð kjarngott hjá honum. Örvæntingarfull leit að merkingu í tilverunni getur verið skáldleg og skemmtileg, og það er þessvegna sem mér finnst stundum gaman að kíkja í kirkju. Meira svona kaldar-þokur og eldklerkatal segi ég.
N.
Vel mælt. Sammála síðustu ræðumönnum.
Þó ég hafi ekki hingað til farið í messu gagngert til að hlusta á ræður prestanna þá kemur fyrir að maður hlustar alveg óvart. Veit ekki hversu uppbyggilegt það er, hefur ekki kveikt hjá mér trúarandann.
Skrifa ummæli
<< Home