11 desember 2006

Orsök og afleiðing

Mikið hefur farið fyrir skýrslu UNICEF í fréttum þar sem sýnt er fram á að með því að auka jafnrétti kynjanna meigi bjarga börnum frá vannæringu og þeim kvillum sem því fylgja.

Nú er það svo að ég hef ekki alltaf átt gott með að átta mig á hvernig félagsfræðingar setja niður fyrir sér hvað sé orsök og hvað afleiðing. Oft þykir mér sem orsökin sé valin sem sá punktur sem henti hvað best til að koma einhverju áróðurstengdu til skila.

Þannig má leikasér og lesa úr skýrslunni að vannæring barna dragi úr möguleikum kvenna til jafnréttis, eða að dóminerandi faðir sé líklegri til að eiga vannært barn?

Nú er jafnrétti í Saudi Arabíu ekki neitt sérlega mikið en ekki veit ég til þess að börn þar séu mikið vannærð.

Aftur á móti ef nokkur fylgni í lýðræðissamfélögum milli velmegunnar og jafnréttis og virðist jafnréttið koma hægt og bítandi í kjölfar aukinnar velmegunnar. Í velmegun er lítið um vannæringu bæði hjá börnum og fullorðnum. Að ætla að spyrða saman jafnrétti og mataræði barna sem eitthvað orsakasamband er bara ævintýraleg vitleysa.

Nú hefur UNICEF verið að beita sér fyrir auknu jafnrétti í þróunarlöndum og svona skýrsla ætti að auðvelda fjáröflun sem og réttlætingu þeirra stefnu sem verið er að fylgja.

4 Comments:

At 8:23 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég var að hugsa þetta nákvæmlega sama þegar sagt var frá þessu í fréttum.

Góður punktur hjá þér og frábærlega sett í texta.

 
At 3:07 e.h., Blogger Refsarinn said...

Takk fyrir það.

 
At 3:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já enn hittir Refsarinn beint á naglann.

 
At 5:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Félagsfræðingar. Hmmm....!
Eiga það sameiginlegt með sálfræðingum að vilja líta á sig sem vísindamenn en eru oftast í miklum eirfiðleikum með að vinna sem slíkir.

 

Skrifa ummæli

<< Home